Leiðin hingað

Nítján ára flutti ég til San Francisco. Planið var að læra vöruhönnun, spila háskólafótbolta og byggja upp feril í tækni. Ég sá fyrir mér að vera þar næstu tíu árin.
Fyrst gekk allt eftir. Mér leið vel í borginni og í Academy of Art University. Ég kynntist íslenska samfélaginu þar og sökkti mér í viðmótshönnun og notendaupplifun.
Tvö verkefni úr náminu hafa fylgt mér síðan. Annað var samstarfsverkefni með NASA þar sem við þróuðum vélmennakerfi fyrir Alþjóðlegu geimstöðina. Hitt var Strike, búnaður sem ætlað var að hjálpa til við að fyrirbyggja höfuðáverka í íþróttum með því að fylgjast með höggum, frammistöðu og endurheimt. Ég leiddi vöru- og viðmótshönnunina og verkefnið hlaut viðurkenninguna Best in Show árið 2022. Þar kviknaði áhugi minn á heilsutækni.
Eftir útskrift hóf ég störf hjá Apple við hönnun vefverslana fyrir samstarfsaðila fyrirtækisins. Ég vann með hönnuðum, vöruteymum og markaðsfólki að því hvernig fólk skoðar og kaupir Apple-vörur á ólíkum mörkuðum.
Það var starfið sem ég hafði stefnt að. Svo komu upp vandræði með vegabréfsáritunina.
Í stað þess að bíða mánuðum saman ákvað ég að taka starfi hjá sprotafyrirtæki í Evrópu. Áður en ég flutti kom ég stutt heim til Íslands. Þá fékk ég símtalið: fjármögnun fyrirtækisins hafði brugðist og ekkert yrði af starfinu. Ég var þegar farinn frá Bandaríkjunum og gat ekki snúið aftur.
Áformin breyttust því snögglega. Ég fór til Icelandair og vann þar við Saga Club, bókunarkerfið og hönnunarkerfi fyrirtækisins. Ég lærði mikið, en löngunin til að byggja eitthvað sjálfur var enn til staðar.
Í dag vinn ég að Studioek og Nouri, heilsuappi sem ég stofnaði með öðrum. Leiðin varð önnur en ég ætlaði, en hún leiddi mig að verkefnum sem ég vil verja tímanum í: að hanna vörur sem nýtast fólki.
Þú getur kynnt þér Nouri á nouri.is.
Tengdar greinar
Sjá meira
Fleiri greinar um hönnun, tækni og starfið á stofunni.